Heyrn Hlíðasmára 11 Kópavogi, sími: 534 9600, netfang: heyrn@heyrn.is
Kerfið er hannað fyrir heyrnarskert fólk.
Í Lynx viðvörunarkerfinu eru bæði sendar og móttakarar. Sendarnir skynja merki og senda þráðlaust til móttakaranna en þeir gera viðvart um það sem er að gerast. Hér á eftir eru taldir upp þeir sendar sem hægt er að hafa í kerfinu. Það er háð aðstæðum er hversu marga senda þarf á hverjum stað og eru þeir því seldir stakir.
Lynx hljóðskynjari er sendir sem skynjar hljóð með hljóðnema sem er í langri snúru. Hægt er að staðsetja hljóðnemann á hverjum þeim stað sem maður vill að hann nemi hljóð frá ákveðnum hljóðgjafa t.d frá dyrabjöllu, síma eða dyrasíma.

Lynx dyrabjallan lítur úr eins og venjuleg dyrabjalla. Hægt er að skipta á henni og dyrabjöllunni sem er fyrir eða tengja hana við þá bjöllu. Hægt er að festa hana með lími, sem límir á tvö vegu, eða með skrúfu. Þegar ýtt er á hnappinn sendir bjallan þráðlaust merki til móttakarans í kerfinu (blikkljóss, armbandstirtara eða hljóðbjöllu).

Þegar síminn hringir þá sendir skynjarinn þráðlaust merki til móttakarans í kerfinu (blikkljóss, armbandstitrara eða hljóðbjöllu).

Lynx reykskynjari lítur út eins og venjulegur reykskynjari en í honum er innbyggður sendir sem sendir þráðlaust merki til móttakarans í kerfinu (blikkljóss, armbandstitrara eða hljóðbjöllu).
Einnig gefur hann fá sér mjög hátt hljóð.
Lynx barnavaktarinn nemur barnsgrát og sendir þráðlaust merki til móttakarans í kerfinu (blikkljóss, armbandstirtara eða hljóðbjöllu).
Hægt er að stilla næmni barnavaktarans með takka framan á tækinu.

Lynx TX-1 er alhliða skynjari sem nemur og sendir mörg mismunandi merki t.d. símhringingu, dyrabjöllu, reykskynjara, segulsendingar frá hurðum og gluggum. Merkið sendir hann þráðlaust til móttakarans í kerfinu (blikkljóss, armbandstitrara eða hljóðbjöllu).
Sjá einnig um móttakara
HEYRN ehf, Hlíðasmára 11, 201 Kópavogur, kt: 590307-0920,
sími: 534 9600, fax: 534 9620, netfang:
heyrn@heyrn.is
HEYRN ehf, Hlíðasmára 11, 201 Kópavogur, kt: 590307-0920, sími: 534 9600, fax: 534 9620, netfang: heyrn@heyrn.is