Heyrn Hlíðasmára 11 Kópavogi, sími: 534 9600, netfang: heyrn@heyrn.is

Tónmöskvar

Auto Mini tónmöskvi

Auto Mini er einfaldur tónmöskvi sem vinnur með öllum heyrnartækjum sem hafa T.
Tónmöskvinn magnar t.d. hljóðið frá sjónvarpinu en þaðan fer það um sessu í heyrnartækið.
Auto Mini gefur réttan hljóðstyrk án truflandi umhverfishljóða og óháð þeim styrk sem sjónvarpið er stillt á fyrir aðra notendur.

Nánari upplýsingar

TS-150 tónmöskvi

TS-150 hentar fyrir heimili og önnur rými upp að 150 m2. Hann gagnast öllum sem nota heyrnartæki með T-stillingu og vilja heyra í sjónvarpi eða útvarpi án truflana frá umhverfishljóðum.
Þó að sjónvarpið sé tengt digitalboxi, vídeótæki, dvd-spilara eða öðrum græjum nemur sjálfvirki búnaðurinn í tónmöskvanum það tæki sem senda á hljóð úr og rétt merki berst til heyrnartækjanna.
TS-150 sendir fullkomið hljóð um allt rýmið. Það er aðeins stærð þess sem takmarkar hversu margir heyrnartækjanotendur geta hlustað samtímis.
TS-150 er með tvö scart-tengi, eitt fyrir sjónvarpið og annað fyrir vídeóið. Scart-tengin fylgja með. Einnig eru inngangar fyrir hljóðnema og PA-kerfi.

Nánari upplýsingar

Transett 32 tónmöskvi

Transett 32 er öflugur tónmöskvi sem býður upp á marga möguleika. Hann er hannaður fyrir stærri rými s.s. opinberar byggingar, kirkjur, samkomusali og skóla.
Einn Transett 32 nægir fyrir rými upp að 180 m2 en bæta má við hann fleiri einingum svo að hann getur dekkað mjög stórt rými.
Hljóðgæðin eru mikil en hægt er að magna upp sitt í hvoru lagi lágtíðni og hátíðni hljóð.

Nánari upplýsingar

HEYRN ehf, Hlíðasmára 11, 201 Kópavogur, kt: 590307-0920,
sími: 534 9600, fax: 534 9620, netfang: heyrn@heyrn.is

HEYRN ehf, Hlíðasmára 11, 201 Kópavogur, kt: 590307-0920, sími: 534 9600, fax: 534 9620, netfang: heyrn@heyrn.is