Heyrn Hlíðasmára 11 Kópavogi, sími: 534 9600, netfang: heyrn@heyrn.is

Pulse heyrnartækið er hannað fyrir hleðslurafhlöður en vinnur einnig vel með einnota rafhlöðum. Hleðslurafhlöðurnar eru hlaðnar með SuperTuneTM hleðslutækinu sem er fyrst sinnar gerðar í heiminum og er í samræmi við nútímakröfur. Heyrnartækin eru einfaldlega sett í hleðslutækið og hlaðast á 5 tímum.
Hér er eitthvað fyrir þá sem vilja hafa hlutina einfalda, eru þreyttir á að handleika örsmáar rafhlöður og vita að notkun einnota rafhlaðna er sóun sem mengar umhverfið.
Að hlaða rafhlöður er ekki það eina sem hleðslutækið gerir. Merkjaljós gefur upplýsingar um heyrnartækið. Hleðslutækið má tengja við USB inngang PC-tölvu og losna þannig við spennubreytinn. Síðast en ekki síst þá aðvarar hleðslutækið þig ef þú setur í það heyrnartæki með einnota rafhlöðu.

Pulse heyrnartækin vinna best ef í þeim eru nikkelmálmhýdríð hleðslurafhlöður en þau vinna einnig vel með venjulegum einnota sink-loft rafhlöðum. Ef þú fyrir slysni reynir að hlaða einnota rafhlöður þá byrjar að blikka ljós á hleðslutækinu.
HEYRN ehf, Hlíðasmára 11, 201 Kópavogur, kt: 590307-0920,
sími: 534 9600, fax: 534 9620, netfang:
heyrn@heyrn.is
HEYRN ehf, Hlíðasmára 11, 201 Kópavogur, kt: 590307-0920, sími: 534 9600, fax: 534 9620, netfang: heyrn@heyrn.is