Heyrn Hlíðasmára 11 Kópavogi, sími: 534 9600, netfang: heyrn@heyrn.is

Leiðarvísir með ReSound Pulse

Tegund PS60-R

Til hamingju með nýju stafrænu heyrnartækin frá GN ReSound!

ReSound PulseTM færir þér einstök hljóðgæði heima við, í vinnunni og almennt í samskiptum við annað fólk. ReSound Pulse heyrnartækin þín hafa verið stillt og sniðin að heyrn þinni.

Til að hafa sem mest not af nýju heyrnartækjunum þarftu að kynna þér vel upplýsingarnar í þessum leiðarvísi.

Efnisyfirlit


ReSound Pulse heyrnartækið þitt

  1. Hátalaraleiðsla
  2. Hljóðkeila eða plúskeila
  3. Stoðsproti
  4. Rafhlöðuhurð
  5. Hljóðútgangur
  6. Fremri hljóðnemi
  7. Aftari hljóðnemi
  8. Stærð rafhlöðu
  9. Gerð tækis
  10. Framleiðandi
  11. Raðnúmer

Notkunarstillingar

Styrkstillir

Styrkstilling ReSound Pulse heyrnartækis er algjörlega sjálfvirk svo það þjónar engum tilgangi að reyna að stilla tækið. Heyrnartækið þitt er forritað þannig að mögnun þess breytist í samræmi við þínar þarfir.

Rofi, slökkt og kveikt

ReSound Pulse heyrnartækið þitt er með rofa sem er tengdur rafhlöðuhurðinni. Þegar rafhlöðuhurðin er alveg lokuð þá er kveikt á tækinu.

Til að slökkva á tækinu þá er rafhlöðuhurðin opnuð með að ýta varlega nögl undir hana. Smá smellur heyrist þegar slokknar á tækinu. Mundu eftir að slökkva á tækinu þegar þú ert ekki að nota það með því spararðu rafhlöður. Ef þú notar endurhlaðanlegar rafhlöður í ReSound Pulse heyrnartækið þitt þá opnast rafhlöðuhurðin þegar heyrnartækinu er stungið í vasann á hleðslutækinu.

Snjöll ræsing

Heyrnarfræðingurinn þinn hefur trúlega virkjað snjalla ræsingu í tækjunum þínum. Sem þýðir að það kviknar fyrst á tækinu 10 sekúndum eftir að rafhlöðuhurðinni er lokað en á meðan geturðu sett tækið á bak við eyrað og sett hátalaraleiðsluna inn í hlustina án truflandi hljóða og ískurs. Ef snjöll ræsing er virkjuð þá pípir í tækinu með sekúndu millibili eftir að kveikt er á því.

Að setja heyrnartækið á eyrað


  1. Hengdu tækið á eyrað.
  2. Taktu um bogann á hátalaraleiðslunni og stingdu keilunni inn í hlustina þannig að leiðslan falli að höfðinu. Keilan er rétt sett í ef þú sérð ekki í hátalaraleiðsluna þegar þú horfir beint í spegil.
  3. Settu stoðsprotann í krikann í eyranu beint yfir eyrnasnepli. Ýli í tækinu þá er líklegast að keilan sé ekki rétt í hlustinni. Einnig getur verið að það sé eyrnamergstappi í hlustinni. Þá er einnig hugsanlegt að tækið sé vanstillt. Ef tækið heldur áfram að ýla þó að þú hafir útilokað allar fyrrnefndar ástæður þá er ráðlegast að hafa samband við heyrnarþjónustuna þína.

Skipt um rafhlöðu

Þegar spenna rafhlöðunnar lækkar niður fyrir ákveðið mark hættir tækið að magna en gefur í stað þess fjögur lág hljóðmerki. Hljóðmerkin heyrast á fimm mínútna fresti þar til slokknar á tækinu.

Mælt er með því að þú hafir ætíð aukarafhlöðu á þér vegna þess að stuttur tími getur liðið frá því að fyrstu hljóðmerki heyrast þar til slokknar á tækinu. Opnaðu rafhlöðuhurðina alveg með því að nota fingurnögl en um leið slokknar á tækinu. Settu hlaðna rafhlöðu í stað þeirrar tómu. Slétta hliðin með + á að snúa út. Límmiði, sem á að fjarlægja, er á þeirri hlið einnota rafhlaðna og svartur blettur á þeim endurhlaðanlegu. Rafhlaðan á að falla í hurðina eins og kubbur í púsluspil. Það á að vera mjög létt að loka rafhlöðuhurðinni, það má aldrei nota kraft til að loka henni það getur eyðilagt tækið.

Notaðu ætíð einnota sink-loft rafhlöðu eða endurhlaðanlega rafhlöðu af stærðinni 312. Athugaðu að lélegar rafhlöður takmarka hljóðgæði tækisins. Fjarlægðu rafhlöðu úr tækinu ef þú notar það ekki í einhvern tíma það kemur í veg fyrir að falli á rafhlöðutengi.

Aðvörunarorð um rafhlöður

Rafhlöðum á að farga í endurvinnslu vegna þess að í þeim eru efni sem eru hættuleg bæði fyrir menn og umhverfi.

Dagleg umhirða

Haltu heyrnartækinu þínu hreinu og þurru. Þegar þú tekur tækið af þér þá er gott að þurrka það með mjúkum klút eða pappírsþurrku til að fjarlægja raka og fitu. Varast ber að tækið verði fyrir miklum raka s.s. steypiregni eða vatni í sturtu. Ef tækið blotnar eða ef það hefur verið í miklum raka eða svita þá á að setja það í lokað ílát ásamt rakagleypi yfir nótt. Ráðfærðu þig við heyrnarþjónustuna þína um hvers konar rakagleypi á að nota.

Til að komast hjá ónauðsynlegum viðgerðum:

Hátalaraleiðsla og keila

Hátalaraleiðslan flytur merki frá heyrnartæki til hátalara í eyranu. Mikilvægt er að leiðslan og keilan falli rétt í eyrað. Ef leiðslan eða keilan erta eyrað þannig að það kemur jafnvel í veg fyrir að þú notir tækið hafðu þá samband við heyrnarþjónustuna þína. Reyndu ekki að breyta lögun hátalaraleiðslu. Leiðslu og keilu þarf að hreinsa reglulega.

Þurrkaðu leiðslu, hátalara og keilu að utan með rökum klút. Skipta á um keiluna á þriggja mánaða fresti eða oftar ef hún verður stíf eða stökk. Við mælum með því að þú látir heyrnarþjónustuna skipta um stoðsprota og keilu fyrir þig. Ef heyrnarþjónustan leiðbeinir þér við að skipta um stoðsprota og keilu vertu þá viss um að allt sé tryggilega fest á hátalaraleiðsluna áður en þú setur það eyrað. Mistök við að festa þessa hluti saman geta skaðað eyrað.

Þannig á að festa hljóðkeilu á leiðsluna.

Stoðsproti og hljóðkeila eru fest á hátalaraleiðslu með því að þrýsta keilunni inn fyrir brúnirnar á leiðslunni.

Þannig á að festa plúskeilu á leiðsluna

Stoðsproti og plúskeila eru fest á hátalaraleiðslu með því að þrýsta keilunni inn fyrir brúnirnar á leiðslunni.

Plúskeilan er með tveimur blöðum. Það er mjög mikilvægt að stærra blaðið falli yfir það minna (1).

Stöðu blaðanna má breyta með því að ýta þeim með vísifingri frá hátalaraleiðslunni. (2) Við það bognar stærra blaðið frá. Þegar því er ýtt til baka fellur það yfir minna blaðið (3). Þá er keilan tilbúin fyrir eyrað (4).

Hljóðnemasíur

Í ReSound Pulse heyrnartækjum eru tvær síur. Þessar síur eru framan á og ofan á tækinu og hindra að raki og óhreinindi fari inn í heyrnartækið. Ef bera fer á því að styrkur heyrnartækis minnki þrátt fyrir að rafhlaða sé fullhlaðin þá getur verið að síur séu stíflaðar og það þurfi að skipta um þær.

Þú skalt hafa samband við heyrnarþjónustuna til að skipta um síur.

Hátalarasía

Op á hátalaraleiðslu er varið með Cerustop hátalarasíu. Aðeins má nota þannig síur. Fáðu nánari upplýsingar hjá heyrnarþjónustunni þinni.

Að tala í síma

Með ReSound Pulse getur þú notað síma eins og þú gerir án heyrnartækis. Haltu símtækinu að eyranu eins og venjulega.

Ef þú finnur fyrir óþægindum í hlustinni frá keilunni þegar síminn er lagður að eyranu þá getur verið að hátalaraleiðslan sé ekki af réttri lengd. Til að fá úr því skorið skaltu hafa samband við sérfræðinga hjá heyrnarþjónustunni þinni.

Viðgerðir

Ef tæki bilar þá á að gera við það hjá viðurkenndri heyrnartækjaþjónustu. Reyndu ekki að opna tækið því þá fellur ábyrgðin á því úr gildi. Ef ReSound Pulse heyrnartæki þarfnast viðgerðar hafðu þá samband við heyrnarþjónustuna þína.

Almennar varúðarráðstafanir

Tæknilegar upplýsingar

Hámarks útsending (2cc coupler / IE C 60118-7) 106 dB SPL

Leiðbeiningar ef eitthvað bjátar á

Lýsing Orsök Möguleg úrbót
Ekkert
hljóð
  1. Ekki kveikt.
  2. Léleg eða tóm einnota rafhlaða.
  3. Tóm endurhlaðanleg rafhlaða.
  4. Rafhlaða rangt sett í.
  5. Lokað fyrir hátalaraop.
  6. Stíflaðar síur í hljóðnemum.
  1. Kveiktu, lokaðu rafhlöðuhurð.
  2. Skiptu um rafhlöðu.
  3. Settu rafhlöðu í hleðslu.
  4. Settu rafhlöðu rétt í.
  5. Hreinsaðu hátalaraopið.
  6. Hafðu samband við heyrnarþjónustu.
Heyrist of
lágt í tækinu
  1. Keilan rangt sett í.
  2. Lokað fyrir hátalaraop.
  3. Breyting á heyrn.
  4. Mikill eyrnamergur.
  5. Stíflaðar síur í hljóðnemum.
  6. Stilling heyrnartækis er ekki rétt.
  1. Settu keiluna vandlega í hlustina.
  2. Hreinsaðu hátalaraopið.
  3. Hafðu samband við heyrnarfræðing.
  4. Hafðu samband við eyrnalækni.
  5. Hafðu samband við heyrnarfræðing.
  6. Hafðu samband við heyrnarfræðing.
Ýlir í tæki
  1. Hátalaraleiðsla með keilu ekki rétt í eyra.
  2. Plúskeilan rangt sett á hljóðslöngu.
  3. Stillingar heyrnartækis ekki réttar.
  1. Settu þær aftur vandlega í eyrað.
  2. Settu plúskeiluna rétt á, sjá.
  3. Hafðu samband við heyrnarfræðing.
Hljómar
ekki skýrt
  1. Léleg rafhlaða.
  2. Hátalaraleiðsla og keila passa illa.
  3. Heyrnartækið er skemmt.
  4. Stillingar heyrnartækis eru ekki réttar.
  1. Skiptu um og hladdu rafhlöðuna.
  2. Hafðu samband við heyrnarþjónustu.
  3. Hafðu samband við heyrnarþjónustu.
  4. Hafðu samband við heyrnarþjónustu.

Ef kemur upp vandamál, sem ekki er nefnt í listanum, hafðu þá vinsamlegast samband við heyrnarþjónustu.

Aðalstöðvar

Þjónusta á Íslandi

CE Öllum spurningum varðandi læknisfræðilegar reglur EU 93/94EE C
á að beina til GN ReSound A/S.

15844719-IS-07.05 Rev.A

HEYRN ehf, Hlíðasmára 11, 201 Kópavogur, kt: 590307-0920,
sími: 534 9600, fax: 534 9620, netfang: heyrn@heyrn.is

HEYRN ehf, Hlíðasmára 11, 201 Kópavogur, kt: 590307-0920, sími: 534 9600, fax: 534 9620, netfang: heyrn@heyrn.is