Heyrn Hlíðasmára 11 Kópavogi, sími: 534 9600, netfang: heyrn@heyrn.is

Leiðarvísir með hleðslutæki fyrir ReSound Pulse

Tegundir PS60 og PS60-R

Til hamingju með nýju stafrænu heyrnartækin frá GN ReSound!

ReSound PulseTM færir þér einstök hljóðgæði heima við, í vinnunni og almennt í samskiptum við annað fólk. ReSound Pulse heyrnartækin þín hafa verið stillt og sniðin að heyrn þinni.

Til að hafa sem mest not af hleðslutækinu með nýju heyrnartækjunum þarftu að kynna þér vel upplýsingarnar í þessum leiðarvísi.

ReSound PulseTM er skráð vörumerki frá GN ReSound.

Efnisyfirlit

Hleðslutæki fyrir ReSound Pulse heyrnartækið þitt

  1. Heyrnartækjavasar
  2. Merkjaljós
  3. Sproti fyrir aukarafhlöður
  4. Snúra
  5. Lyklakippuslíður sem geymsla fyrir aukarafhlöður

Uppsetning

Tengdu snúruna frá spennubreytinum við hleðslutækið. Settu síðan í samband við venjulegan tengil.

Þú getur einnig tengt hleðslutækið með USB-snúru (sem fylgir ekki með) við PC tölvu og hlaðið ReSound Pulse heyrnartækið á þann hátt.

Að hlaða ReSound Pulse heyrnartækin þín

Með hleðslutækinu er hægt að hlaða hleðslurafhlöður sem eru í ReSound Pulse heyrnartækjum. Ekki skiptir máli í hvorn vasann hægra eða vinstra heyrnartækið er sett. Það er ekki ráðlegt að taka hljóðslöngur af heyrnartækjunum áður en þau eru sett í hleðslutækið. Vertu viss um að rafhlöðuhurðin sé lokuð áður en þú setur heyrnartækið í hleðslutækið.

Hleðslutækið opnar hurðina sjálfvirkt. Þegar þú setur heyrnartækið í þá á keilan að vísa niður.

Stingdu enda heyrnartækisins með rafhlöðuhurðina á undan varlega niður á við inn í heyrnartækjavasann eins langt og heyrnartækið kemst. Mundu eftir að rafhlöðuhurðin á að vera lokuð.

Þegar hleðslutækið er tengt við rafmagn um spennubreytinn og eitt eða tvö heyrnartæki eru í því lýsir grænt ljós hjá hvoru heyrnartæki.

Græna ljósið slokknar þegar rafhlaðan er fullhlaðin.

Þegar þú tekur ReSound Pulse heyrnartæki úr hleðslutækinu skal taka um sjálft tækið, það má ekki draga það úr með því að toga í hátalaraleiðslu. Skemmd hátalaraleiðsla eða hljóðslanga hefur áhrif á starfsemi tækisins. Kveikt er á tækinu eins og venjulega með því að loka rafhlöðuhurðinni.

Merkjaljós

Til að öruggt sé að bæði heyrnartækin hlaðist rétt þá er ljós hjá hvoru tæki.

1) Stöðugt grænt ljós sýnir að rafhlaðan er að hlaðast.

Græna ljósið lýsir á meðan rafhlöðurnar eru að hlaðast. Það tekur um 5 klukkustundir að fullhlaða rafhlöðu. Því er hagkvæmt að hlaða tækin á nóttunni. Græna ljósið slokknar þegar rafhlaðan er fullhlaðin og þá má taka tækið úr vasanum en það má gjarnan vera í hleðslutækinu þar til að þú notar það.

2) Blikkandi grænt ljós sýnir að eitthvað er að rafhlöðunni.

Ef græna ljósið blikkar taktu þá heyrnartækið úr vasanum og athugaðu hvort endurhlaðanleg rafhlaða er í því. Ef græna ljósið blikkar áfram, eftir að tækið er sett í aftur, þá er rafhlaðan ef til vill gölluð. Reyndu aðra rafhlöðu.

Athugaðu að hleðslutækið er aðeins gert fyrir nikkelmálmhýdríð rafhlöður sem þú pantaðir með hleðslutækinu. Notaðu aðeins rafhlöður, sem viðurkenndar eru af ReSound, til að tryggja að ReSound Pulse heyrnartækin vinni rétt.

3) Það kviknar ekki ljós þegar heyrnartækið er sett í.

Kannaðu hvort spennubreytir sé tengdur og hvort endurhlaðanleg rafhlaða sé í heyrnartækinu. Ef ljósið kviknar ekki getur verið að rafhlöðuhurðin hafi ekki opnast nægilega til að rafhlaðan geti hlaðist. Taktu heyrnartækið úr vasanum, ef rafhlöðuhurðin er opin lokaðu henni þá og settu tækið aftur í hleðslutækið.

Sjá einnig , leiðbeiningar ef eitthvað bjátar á.

Geymsla fyrir aukarafhlöður


Setja má eina eða tvær hlaðanlegar rafhlöður í sprota sem rennt er inn í hleðslutækið. Sprotinn er losaður með því að ýta í endann á honum með fingrinum.

Tómar hlaðanlegar rafhlöður, sem settar eru í geymsluna, fullhlaðast á um 10 klukkustundum. Ef rafhlöður eru hlaðnar að hluta styttist hleðslutími í samræmi við það. Engar áhyggjur þarf að hafa af rafhlöðunum í geymslunni. Þær mega vera þar eins lengi og henta þykir. Þær skemmast ekki en þegar þær eru teknar úr þá eru þær fullhlaðnar.

Mælt er með að þú notir lyklakippuslíðrið fyrir aukarafhlöðurnar sem þú hefur á þér. Fullhlaðin rafhlaða getur haldið hleðslu í nokkra mánuði.

Reyndu ekki að endurhlaða einnota sink-loft rafhlöður

Venjulegar einnota rafhlöður fyrir heyrnartæki er ekki hægt að endurhlaða. Ef þú setur heyrnartækið með einnota rafhlöðu í hleðslutækið mun græna ljósið blikka og rafhlaðan hleðst ekki. Ef einnota rafhlaðan er ekki tóm þá líður smástund þar til ljósið fer að blikka. Einnota rafhlöður hlaðast heldur ekki þegar þær eru geymdar í sprotanum í geymsluhólfinu.

Ef rafhlaðan í tækinu er endurhlaðanleg og ljósið heldur áfram að blikka sjáðu þá nánar . Takist ekki að fá ljósið til að hætta að blikka hafðu þá samband við heyrnarþjónustu.

Notaðu hleðslutækið aðeins innandyra þar sem þurrt er

Hönnun hleðslutækisins er miðuð við að það sé notað innandyra í þurru umhverfi sem þýðir m.a. að þú mátt ekki hafa það í baðherbergi. Hiti hleðslutækis má ekki vera undir 0°C og ekki yfir 40°C. Við hita undir 0°C og yfir 40°C hleður hleðslutækið ekki rafhlöður og græna ljósið lýsir ekki. Þegar hitinn fer aftur á bilið 0°C til 40°C fer hleðslutækið sjálfkrafa að hlaða rafhlöðurnar sem eru í því.

Notaðu réttan spennubreyti

Aðeins má nota spennubreytinn sem fylgir hleðslutækinu. Ef þú ferðast til landa þar sem klóin á spenninum passar ekki í tengla nægir venjulega að nota millistykki. Spennubreytirinn vinnur á breiðu spennubili eða frá 100 til 240 V AC. Athugaðu spennuna áður en þú tengir.

Þú getur tengt hleðslutækið með staðal USB snúru við PC tölvu og hlaðið ReSound Pulse heyrnartækin þín þannig. USB snúra fylgir ekki með.

Dagleg umhirða

Þú mátt þurrka af hleðslutækinu með rökum klút. Ef þörf krefur má sápuvatn vera í klútnum. Mundu að vinda klútinn vel áður en þú þurrkar hleðslutækið með honum.

Tæknilegar upplýsingar og merkingar

Inngangur að spennubreyti: 100-240 Vac / 50-60 Hz / 80 mA
Hleðslustraumur: Hámark 25 mA
Hleðsluspenna: Hámark 1.7 V
Hleðslutími:
Heyrnartækisvasi um 5 tímar.
Í rafhlöðugeymslu um 10 tímar.

Viðgerð

Ef hleðslutækið þitt bilar á að gera við það á viðurkenndu verkstæði. Reyndu ekki að opna tækið því þá fellur ábyrgðin á því úr gildi.

Ef ReSound Pulse hleðslutæki þarfnast viðgerðar hafðu þá samband við heyrnarþjónustuna þína.

Leiðbeiningar ef eitthvað bjátar á

Lýsing Orsök Möguleg úrbót
Erfitt að setja heyrnartæki í hleðslutækið.
  • Erfiðleikar við að setja heyrnartækið í hleðslutækið.
  • Reyndu ekki að beita krafti ef heyrnartækið rennur ekki frekar ljúflega í vasann dragðu þá tækið út og reyndu aftur.
    Ýttu heyrnartækinu varlega með rafhlöðuhurðina á undan inn og niður á við þar til það stoppar, sjá mynd á bls. 6.
Hleðslutæki hleður ekki
− græna ljósið lýsir ekki
  • Ekki sett í á réttan hátt.
  • Ekki í sambandi við tengil.
  • Rafhlöðuhurðin opnaðist ekki.
  • Heyrnartækið er án rafhlöðu.
  • Athugaðu hvort heyrnartækið er rétt í hleðslutækinu. (Athugaðu að heyrnartækið er ekki rétt sett í fyrr en aðeins um 1 mm er milli hátalaraslöngu- eða hljóðslöngufestingar og gúmmíflipans.) Athugaðu að gúmmístykkið sé rétt sett í.
  • Settu í samband við tengil.
  • Taktu heyrnartækið úr hleðslutækinu. Lokaðu rafhlöðuhurðinni ef hún er opin og stingdu heyrnartækinu aftur í hleðslutækið.
  • Settu endurhlaðanlega rafhlöðu í tækið.
− græna ljósið blikkar
  • Einnota sink-loft rafhlaða er í tækinu.
  • Hleðslutækið hefur ekki náð að núllstillast.
  • Endurhlaðanleg rafhlaða algjörlega þurr eða hefur ekki verið notuð lengi.
  • Endurhlaðanleg rafhlaða er ónýt.
  • Taktu rafhlöðuna úr og settu endurhlaðanlega rafhlöðu í staðinn.
  • Taktu heyrnartækið úr og bíddu í 5 sekúndur og settu það aftur í.
  • Taktu heyrnartækið nokkrum sinnum úr eða þar til græna ljósið lýsir stöðugt.
  • Taktu rafhlöðuna úr og settu nýja endurhlaðanlega rafhlöðu í heyrnartækið.
− engin hleðsla á rafhlöðum í rafhlöðusprota
  • Sprotinn er ekki settur rétt í hleðslutækið.
  • Rafhlöður ekki réttar í sprotanum.
  • Rafhlöður geymdar í lyklakippuslíðri hafa ekki verið settar í hleðslutæki í nokkurn tíma.
  • Athugaðu að sprotinn á að ganga alla leið inn í hleðslutækið.
  • Taktu sprotann úr og athugaðu hvort rafhlöður eru réttar í honum.
  • Settu sprotann með rafhlöðunum í hleðslutækið svo rafhlöður hlaðist.
Rafhlöður duga stutt
  • Heyrnartæki ekki sett rétt í.
  • Rafhlaða að verða ónýt.
  • Athugaðu að setja heyrnartækið rétt í hleðslutækið.
  • Settu nýja endurhlaðanlega rafhlöðu í heyrnartækið.
    (Athugaðu að endurhlaðanlega rafhlöðu má hlaða mörg hundruð sinum. En þegar kemur að því að hún verður léleg minnkar hleðslan sem hún tekur við og þá er tímabært að skipta um hana.)

Ef kemur upp vandamál, sem ekki er nefnt í listanum, hafðu þá vinsamlegast samband við heyrnarþjónustu.

Aðalstöðvar

Þjónusta á Íslandi

CE Öllum spurningum varðandi læknisfræðilegar reglur EU 93/94EE C
á að beina til GN ReSound A/S.






Hleðslutækið er rafeindatæki sem má ekki henda með heimilissorpi. Þú getur fengið upplýsingar hjá heyrnartækjaþjónustu um förgun eða endurvinnslu hleðslutækja.

15844719-IS-07.05 Rev.A

HEYRN ehf, Hlíðasmára 11, 201 Kópavogur, kt: 590307-0920,
sími: 534 9600, fax: 534 9620, netfang: heyrn@heyrn.is

HEYRN ehf, Hlíðasmára 11, 201 Kópavogur, kt: 590307-0920, sími: 534 9600, fax: 534 9620, netfang: heyrn@heyrn.is