Heyrn Hlíðasmára 11 Kópavogi, sími: 534 9600, netfang: heyrn@heyrn.is

Heyrnarþjónusta, heyrnarmæling, heyrnarpróf

Ferli heyrnarþjónustu

Hjá Heyrn færðu greiningu, ábendingar um ráð við heyrnarskerðingu og tilboð um lausn sem vonandi hentar þér.
Ekki þarf tilvísun til að koma til heyrnarfræðings.

Þegar þú kemur í heyrnarþjónustuna þá er farið yfir eftirfarandi atriði:

Ef þú hefur hug á að fá heyrnartæki þá eru þau valin út frá niðurstöðu heyrnargreiningarinnar og því hljóðumhverfi sem þú hrærist í. Mikilvægt er að þú upplýsir heyrnarfræðinginn um hljóðumhverfi þitt.

Þér er boðið að prófa heyrnartæki sem falla að þinni heyrn og reyna þau við mismunandi aðstæður.

Í sumum tilvikum eru tekin mót af eyrunum til að unnt sé útbúa eftir þeim hlustarstykki í eyrun eða heyrnartæki inni í eyra . Það er háð heyrn og smekk hvers og eins hvaða gerð heyrnartækja er valin.

Flestir velja nú til dags tæki bak við eyra með grannri hljóðslöngu eða hátalarasnúru og opinni hljóðkeilu þannig að það lofti um hlustina.

Endurkomur

Fyrir flesta er það mikil breyting að byrja að nota heyrnartæki, þess vegna er eðlilegt að þurfa koma aftur til að fínstilla tækin. Það er einstaklingsbundið hversu oft þarf að fínstilla. Við hjá Heyrn mælum með að þú komir a.m.k. einu sinni á ári til að láta yfirfara tækin þín. Þannig að þú fáir sem best not af tækjunum og þau endist sem lengst.

Í endurkomutímum gefst einnig kostur á að fara betur yfir meðhöndlun og viðhald tækjanna og laga það sem betur má fara.

HEYRN ehf, Hlíðasmára 11, 201 Kópavogur, kt: 590307-0920,
sími: 534 9600, fax: 534 9620, netfang: heyrn@heyrn.is

HEYRN ehf, Hlíðasmára 11, 201 Kópavogur, kt: 590307-0920, sími: 534 9600, fax: 534 9620, netfang: heyrn@heyrn.is