www.heyrn.is
Ótrúlega fjölhæft
Dot er hlaðið öflugum hugbúnaði
- 17-band Wrap™ Sound Processing
Leifturhratt hljóðpökkunarkerfi með mikla upplausn sem líkir eftir hljóðvinnslu eyrans og gefur mjög eðlilegan hljóm.
- Dual Stabilizer™ II
Nýjasta uppfærsla endurómshemlunar skilar skýru og óbjöguðu hljóði inn í eyrað. Með þessari öflugu endurómshemlun má nota bestu opnu tengingu við hlust sem getur verið án lokunarhljóða.
- Impulse Noise Smoother
Hvin eða síbyljuhávaða deyfir Dot á augabragði eða á styttri tíma en 5ms án þess að annað breytist.
- Environmental Optimizer
Hljóðumhverfisbestun ber kennsl á sjö mismunandi gerðir hljóðumhverfis og stillir á sjálfvirkan hátt, í samræmi við þarfir notandans, hlutfall talmáls og suðs í hverju tilviki.
- Natural Directionality™
Eðlileg stefnuvirkni byggir á nýlegri uppgötvun á starfsemi heilans. Heilinn vinnur úr hljóðum sem berast úr öllum áttum og raðar þeim í forgangsröð með því að nota annað eyrað til að hlusta á það sem athyglin beinist að meðan hitt vakir eftir öllum hljóðum. Eðlileg stefnuvirkni er að fullri athygli má halda á viðmælanda í hvaða hljóðumhverfi sem er og hlusta einnig eftir hljóðum sem berast úr öllum áttum.
- MultiScope Adaptive Directionality™
Margvíð aðlögunarhæf stefnuvirkni er háþróað stefnuvirkt hljóðnemakerfi með næmni undir 80, 120 eða 180 gráðu horni.
- SoftSwitching™ Automatic Programme
Mild skipting á milli ákveðinnar stefnuvirkni og fjölstefnuvirkni.
- Noise Tracker™ II Noise Reduction
Hvindempun byggir á nýju öflugu reikniriti sem dempar hvin af þrennskonar styrk án þess að hafa áhrif á annað.
- Acceptance Manager
Aðlögun mögnunar en með henni auka heyrnartækin mögnunina smám saman í allt að þrjá mánuði á meðan notandinn er að aðlagast skýrari hljóðum.
- EchoStop™
Bergmálsgleypir deyfir á áhrifaríkan hátt enduróm frá umhverfinu og líkamanum.
- Windrush Manager™
Vindvörn deyfir vindgnauð svo stunda megi útiveru án þess að vindhvinur í heyrnartækjunum skemmi ánægjuna.
- Onboard Analyzer™ Datalogging
Gagnaskráning í tækinu hefur tiltækar upplýsingar fyrir stilliforritið Aventa um hljóðumhverfið sem heyrnartækjanotandinn hrærist í. Þegar komið er með heyrnartæki í stillingu les tölva gögnin og heyrnarfræðingurinn stillir eftir þeim.
HEYRN ehf, Hlíðasmára 11, 201 Kópavogur, kt: 590307-0920,
sími: 534 9600, fax: 534 9620, netfang:
heyrn@heyrn.is
HEYRN ehf, Hlíðasmára 11, 201 Kópavogur, kt: 590307-0920, sími: 534 9600, fax: 534 9620, netfang:
heyrn@heyrn.is