Heyrn Hlíðasmára 11 Kópavogi, sími: 534 9600, netfang: heyrn@heyrn.is

ReSound AleraTM

Að njóta nýjustu tækni

ReSound Alera eru mjög fíngerð og lítið áberandi heyrnartæki. Þau eru fyrir þá sem vilja það nýjasta á markaðinum, fullkomnustu tæknina og byltingarkennda lausn á þráðlausri tengingu við önnur tæki s.s. sjónvarp og farsíma. ReSound heyrnartæki eru þekkt fyrir sitt eðlilega hljóð og fyrir tæknina sem gerir mögulegt að halda uppi samræðum þó margir tali í einu þar sem annar hávaði er. Notandinn getur treyst því að með tækninni sem tækin byggja á heyri hann það sem hann vill. Auk þess er ljóst að góð hönnun er mikilvæg því að margir meta mikils fíngerð, einföld og lítið áberandi heyrnartæki. Öll þessi atriði voru höfð í huga við þróun og smíði Alera.


Af Alera eru margar gerðir, þannig flestir geta fundið tæki vi sitt hæfi.


Þau eru einnig í mörgum litum

Í ReSound Alera er einnig byggt á þráðlausri, 2,4 GHz, tækni sem er í dag notuð í þráðlaus net önnur tölvusamskipti. Það sem vinnst með þessu er að í heyrnartækjunum er þráðlaus móttakari með töluvert langt drægi. Það þarf enga millitengingu sem hengd er um hálsinn því að móttakarinn í tækjunum ræður við að eiga bein þráðlaus samskipti við t.d. sjónvarp, hljómflutningstæki og farsíma.

Þar með eru ReSound Alera – auk þess að vera heyrnartæki sem gera notandanum kleift að heyra vel við allar aðstæður – einnig ósýnileg heyrnartól sem eru notuð þegar talað er í farsíma, horft á sjónvarp eða hlustað á tónlist. Hljóðið berst milliliðalaust í heyrnartækin úr allt að 7 m fjarlægð frá sjónvarpinu eða úr farsímanum í töskunni. Alera eru í raun einu heyrnartækin með þessa tækni.

Með Alera er hægt að fá nokkur aukatæki sem nefnast ReSound Unite™. Meðal þeirra er lítil og þægileg fjarstýring en með henni má á einfaldan hátt stilla styrk og velja á milli forrita í heyrnartækjunum. Með fjarstýringunni er einnig stillt hljóðið í sjónvarpinu og svarað í farsímann þegar hann hringir. Á skjánum á fjarstýringunni má sjá hvernig heyrnartækin eru stillt.

HEYRN ehf, Hlíðasmára 11, 201 Kópavogur, kt: 590307-0920,
sími: 534 9600, fax: 534 9620, netfang: heyrn@heyrn.is

HEYRN ehf, Hlíðasmára 11, 201 Kópavogur, kt: 590307-0920, sími: 534 9600, fax: 534 9620, netfang: heyrn@heyrn.is